Montes Chardonnay Reserva 2015

img_2635Montes er einhver traustasti vínframleiðandi Chile og ár eftir standa vínin hans fyrir sínu. Chardonnay er auðvitað þrúga sem hefur fyrir löngu sýnt að hún spjarar sig vel í Chile eins og víða annars staðar.

Þetta er ferskt og suðrænt Chardonnay-vín,mikil sól,  í nefi er mild eik, smá vanilla er rennur saman við suðrænan ávöxt, sítrus, ananas og banana. Mjúkt og þægilegt.

80%

1.899 krónur. Algjörlega frábær kaup á því verði.

  • 8
Deila.