Ripasso er aðferð sem notuð er við víngerð í Valpolicella í Veneto á Ítalíu. Þegar safinn er skilinn frá í lok Amarone-víngerjunarinnar er afganginum, þykkum sætum massa, blandað saman við ungt Valpolicella-vín og gerjunin kemst í gang á nýjan leik, Að því búnu er vínið látið þroskast á tunnum.
Vínið er mjög dökkt á lit, fjólublátt, ávöxturinn heitur, þurrkaður og þroskaður, sveskjur, rúsínur, krydd, lakkrís, nokkur reykur, sviðinn viður, djúpt og langt með góðri ferskri sýru.
80%
3.199 krónur. Frábær kaup og hefur lækkað í verð um nær fjögur hundruð krónur milli ára.
-
8