Chardonnay-vínið í Casa Concha-línunni frá Concha y Toro er gert úr þrúgum frá svæðinu Limari. Þetta er eitt nyrsta vínræktarsvæðið Chile og eiginlega ættum við þarna að vera komin á stað þar sem vínrækt í æhsta gæðaflokki er ekki mjög fýsileg. Ef við lítum til sambærilegrar breiddargráðu á norðurhvelinu værum við að tala um Egyptaland. Náttúran er hins vegar duttlungafull og þrátt fyrir legu héraðsins myndast einstaklega góðar aðstæður í Limari fyrir þrúgur á borð við Chardonnay. Þessu má ekki síst þakka svölu Kyrrahafslofti sem að temprar loftslagið verulega.
Fallega gullið á lit, í nefi yndislegur og ljúfur ávöxtur, suðrænn, ferskjur, ananas, mjög þroskaður sítrus, vottur af reyk og vanillu. Þægilega ferskt, mild og ljúf sýra. Hrikalega ljúffengt og aðgengilegt. Algjört sælgæti.
2.999 krónur. Frábær kaup.
-
9