Miguel Torres er meðal merkustu einstaklinga spænskrar víngerðar fyrr og síðar líkt og nánar má lesa um hér. Hann hefur rutt brautina fyrir vínin frá Katalóníu en þaðan streyma nú mörg frábær vín, t.d. frá framleiðendum á borð við Páres Baltá og Raimat.
Torres var frumkvöðull í ræktun á Cabernet Sauvignon á Spáni og hér er Cabernet blandað saman við hina spænsku Tempranillo. Litur eru dökkur, djúpur, örlítill byrjandi þroski, í nefi dökkrauður ávöxtur, kirsuber og skógarber, smá kandís, dökkt súkkulaði. góð fylling og fínleg tannín. Hefur náð hæfilegum og fínum þroska en á enn mikið eftir. Flott vín
90%
2.799 krónur. Frábær kaup. Með nautalund.
-
9