Thermenregion er eitt elsta víngerðarsvæði Austurríkis. Það teygir sig frá útjaðri Vínarborgar og suður á bóginn og þarna hafa verið ræktuð vín frá því á tímum Rómarveldis. Þetta er líka eitt heitasta víngerðarsvæði Austurríkis í margvíslegum skilningi. Vínhús Alphart-fjölskyldunnar er með þeim bestu á svæðinu og var á sínum tíma valið vínhús ársins af austurríska víntímaritinu Falstaff.
Alphart-fjölskyldan er ekki síst þekkt fyrir að nota hinar gömlu hefðbundnu hvítvínsþrúgur svæðisins, Rotgipfler og Neuburger. Vínið er fölgult á lit, fersk angan af gulum eplum, þroskuðum perum og mangóávexti, það er þétt með unaðslegri og ferskri sýru.
80%
2.799 krónur. Frábær kaup, elegant og fínt vín. Með hvítum fisk, ekki verra ef sítróna kemur við sögu.
-
8