Crémant eru freyðivin gerð með áþekkri aðferð og kampavín en úr þrúgum ræktuðum á öðrum svæðum Frakklands. Hvað þekktust eru líklega þau frá Búrgund og Pinot Noir, Chardonnay og Gamay þrúgurnar í þessu víni eru frá hinum ýmum ræktunarsvæðum þess héraðs. Laxableikt, freyðir jafnt og þétt, mild rauð berjaangan, rifsber og jarðarber, örlítið ger, þægilega ferskt, freyðir á mjúkan og þægilegan hátt.
70%
2.889 krónur. Góð kaup.
-
7