Terruyno-vínin eru meðal allra bestu vín chilenska vínrisans Concha y Toro og eru gerð úr þrúgum af tilteknum bletti innan einnar ekru. Carmenere-þrúgurnar sem notaðar voru til framleiðslu á þessu víni koma þannig af bletti sem nefndur er Block 27 af ekrunni Peumo í Cachapoal í Rapel-dalnum en þessi vín hafa reglulega verið tilnefnd sem einhver bestu Carmenere-vín landsins.
Vínið nær vel að fanga eiginleika Carmenere-þrúgunnar, dökkrauð ber, töluverð jörð, þurrt, míneralískt, kalk, og kryddað, tóbakslauf og mildur reykur. Það hefur góða fyllingu í munni, þurrt og nokkuð langt. Mild tannín.
90%
5.199 krónur. Frábær kaup. Með vel hanginni nautasteik eða villibráð.
-
9