MacMurray Estate Russian River Pinot Noir 2015

Fred Macmurray var með þekktari leikurum Hollywood ekki síst á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar og lék í myndum á borð við Double Indemnity. Hann vann með stórleikurum á borð við Bogart og Dietrich en náði aldrei á þann stall sjálfur, kvikmyndavefurinn Imdb segir hann líklega einn vanmetnasta leikara sinnar kynslóðar. Í frístundum sínum hélt hann til á búgarði sínum Sonoma þar sem hann var með búfé og stundaði fluguveiðar í Russian River. Nú í seinni tíð er búgarður MacMurray þekktastur fyrir vínin sem þar eru ræktuð.

Pinot Noir-vínið frá MacMurray Estate er ansi flott eintak af Pinot fra Russian River. Liturinn er bjartur og rauður, þroskuð kirsuber í nefi ásamt dökku súkkulaði og stjörnuanis, þétt og mjúkt, elegant og glæsilegt vín.

90%

3.699 krónur. Frábær kaup. Með kalkún eða önd.

  • 9
Deila.