Altano Douro Reserva 2016

Douro í Portúgal er að verða með áhugaverðari víngerðarsvæðum Evrópu og það er löngu liðin tíð að einungis var hægt að tengja svæðið við hin einstöku portvín. Mörg af bestu vínunum koma þó úr smiðju portvínhúsanna og það á við um Altano sem er framleitt af Symington-fjölskyldunni og Grahams. Vínið er dökkt og þroskað, í nefi plómur, sultuð rifsber, gúmmíhlaup,  í munni mjúk tannín, þurrt, míneralískt.

80%

2.699 krónur. Frábær kaup. Þetta er vín sem gefur mikla dýpt fyrir peninginn.

  • 8
Deila.