
Georgía við Svartahaf er með elstu víngerðarsvæðum veraldar og eru elstu fornleifar sem þar hafa fundist í tengslum við víngerð um átta þúsund ára gamlar. Hefðin er því löng og mikil en engu að síður eru þetta vín sem við sjáum nær aldrei á okkar slóðum – þó nú sé orðin breyting á því. Þó nokkuð af georgískum vínum hafa verið að koma í sölu upp á síðkastið og það fyrsta sem við tökum til umfjöllunar er vín úr Saperavi-þrúgunni frá vínhúsinu Tbilvino. Saperavi er er ein útbreiddasta rauðvínsþrúga Georgíu, dökk og sýrumikil. Hún er ein af örfáum vínþrúgum heimsins sem flokkast sem „teinturier“ þar sem ekki einungis berjahýðið heldur einnig ávaxtakjötið er dökklitað. Annað dæmi um slíka þrúgu er Alicante Bouschet sem ræktuð er víða á Spáni og Portúgal.
Tbilvino var með stærri vínhúsum Georgíu á Sovéttímanum en öðlaðist sjálfstæði samhliða ríkinu og er nú í fjölskyldurekstri.
Tbilvino Saperavi er að mörgu leyti ekki „dæmigert“ georgískt vín, það hefur nokkuð alþjóðlegan blæ (við fjöllum bráðlega um nokkur dæmigerðari). Liturinn er svarblár, dökkur og hyldjúpur, svartur berjaávöxtur í nefi, krækiber og sólber, heitt og kryddað, vottur af lakkrís og töluvert af nýmuldum pipar. Ef maður ætti að grípa til einhverjar samlíkingar við vín sem við þekkjum þá minnir það um margt á suður-frönsk vín, þetta gæti alveg verið hörkugóður Cotes-du-Rhone úr Grenache og Cinsault, ef það væri ekki svona afskaplega dökkt og mikið. Gefið víninu 2-3 tíma til að opna sig. Það á það alveg skilið.
2.829 krónur. Mjög góð kaup. Spennandi og áhugavert vín sem þarf bragðmikinn mat.
-
8