Hótel Holt opnar dyr sínar aftur fyrir matargesti í aðdraganda jóla en þá mun einn fremsti matreiðslumaður landsins, Hákon Már Örvarsson, verða með „pop-up“ í eldhúsinu fjórar helgar í röð. Fyrsta kvöldið verður fimmtudaginn 24. nóvember og verður opið fyrir gesti fimmtudags, föstudags og laugardagskvöld og í hádeginu fimmtudaga og föstudaga fram til 17. desember. Í borði verður fimm rétta matseðill ásamt vínpörun.
Listasafnið á Hótel Holti skipar stórt hlutverk í veitingahúsasögu Íslands en það opnaði fyrst dyr sínar árið 1965. Um árabil var Holtið miðpunktur veitingahúsamenningarinnar á Íslandi og það viðmið sem allir litu til þegar meta átti gæði matar og þjónustu.
Holtið naut góðs af einstakri umgjörð, hvert rými lítið listasafn, barinn með afslappað andrúmsloft við arinseld, koníaksstofan sem minnti á breskan séntilmannaklúbb þar sem hægt var að sökkva sér ofan í mjúka sófa úr dökku leðri og svo auðvitað sjálft Listasafnið eða Gallerý, matsalurinn þar sem margar af flottustu veislum Íslands hafa verið haldnar.
Matargerðin hefur frá upphafi sótt í franska eldhúsið og var klassísk fyrstu árin. Margir af réttunum sem í boði voru nutu það mikilla vinsælda að þeir voru á matseðli áratugum saman eins og graflaxinn með ristuðu brauði og víkingasósu, crepes suzette að ekki sé minnst á Holtsvagninn sem ekið var um salinn en á honum mátti finna m.a. turnbauta með béarnaise og heilsteiktan lambahrygg sem var sneiddur niður, eða „trancheraður“ fyrir framan gesti af þjónum í sal.
Það var svo á áttunda áratug síðustu aldar að Holtið fór að skera sig í auknum mæli frá öðrum veitingahúsum og mynda sér sérstöðu. Matreiðslumenn Holtsins fengu frelsi til að þróa matargerðina frá þeirri íhaldssemi sem hafði verið ríkjandi í matargerð, ekki bara á Íslandi heldur um Evrópu alla. Straumar á borð við nouvelle cuisine, sem þá þóttu mjög framandi, fóru að hafa áhrif inn í eldhúsið á Holtinu og það varð leiðandi í því að þróa og móta veitingahúsamenninguna.
Margir af þekktustu matreiðslumönnum og bestu þjónum landsins fengu „uppeldi“ sitt á Holtinu og áhrifa þess gæta víða enn þann dag í dag. Einn af þeim þekktustu er Hákon Már Örvarsson sem byrjaði í eldhúsinu á Holtinu 1994 eftir að hafa verið nemi á Fiðlaranum á Akureyri. Eftir að hafa starfað í millitíðinni sem aðstoðaryfirkokkur á hinum þekkta veitingastað Leu Linster í Lúxemborg kom hann aftur á Holtið sem aðstoðaryfirkokkur áður en hann varð yfirkokkur á Holtinu 1999-2000. Í framhaldinu starfaði hann um skeið sem yfirkokkur hjá Leu Linster og Vox. Hann rak einnig um tíma veitingastaðinn Essensia og hefur séð um matinn í veiðihúsunum í Haffjarðará, Miðfjarðará og Norðurá.
Hákon hefur unnið til margvíslegra verðlauna á ferli sínum, meðal annars hefur hann verið valinn Matreiðslumeistari ársins, unnið brons-verðlaun í Bocuse d’Or keppninni og Norðurlandakeppni.
Hákon segir það vera gaman og spennandi að koma aftur inn í eldhúsið á Holti. „Ég var fyrst ráðinn hingað inn kvöldið sem ég var að elda fyrir sveinsprófið sem matreiðslumaður. Eldhúsið á Holtinu var þá eitt það besta á landinu og þessi tími hér hafði mjög mótandi áhrif á mig. Það má því segja að ég sé kominn aftur á kunnuglegar slóðir,“ segir Hákon Már.
Það voru þau Þorvaldur Guðmundsson og eiginkona hans Ingibjörg Guðmundsdóttir sem stofnuðu hótelið en frá árinu 2004 hefur það verið í eigu Geirlaugar dóttur þeirra.