
Tua Rita er ekki stórt vínhús en það framleiðir nokkur af eftirsóttustu og dýrustu vínum Ítalíu, ekki síst ofurvínið Redigaffi, sem var fyrsta ítalska vínið til að fá 100 Parker punktar.
Rosso dei Notri er „standard“-vínið frá Tua Rita, blanda úr Cabernet Sauvignon, Merlot, Syrah, Sangiovese og Cabernet Franc. Þrúgurnar koma af sömu ekrum og stóru vínin en eru teknar í hús fyrr á meðan bestu klasarnir eru skildir eftir lengur til að þroskast áfram í stóru vínin Redigaffi og Per Sempre. Rosso dei Notri er ekki látið þroskast á eik, þetta er bara hreinn og beinn ávöxtur sem þarna er að finna. Og þvílíkur ávöxtur. Strúktúrinn minnir um margt á stóru vínin – bara í smækkaðri mynd. Vínið er djúpt og virkar í fyrstu svolítið hrátt og jafnvel fráhrindandi á meðan það er þetta ungt. En það er bara blekking – gefið því tíma og það gerast undur. Mæli með að bíða annað hvort í a.m.k. ár (helst tvö) eða þá að opna flöskuna allt að sólarhring áður en vínið er borið fram. Smátt og smátt tekur vínið á sig aðra mynd – þarna er þroskuð, krydduð plóma, sólber og apótekaralakkrís, þykkt, langt og sýrumikið. Kostar brot af því sem stóru vínin kosta og er hverrar krónu virði.
3.889 krónur. Frábær kaup. En ekki gleyma að opna og helst umhella með mjög góðum fyrirvara ef þið neytið þess núna. Með hreindýri.
-
10