Vietti Barbera d’Asti Trevigne 2020

Barbera er kannski ekki eins ´þekkt þrúga og sveitungurinn Nebbiolo sem notuð er í þekktasta vín Piedmont eða Barolo. Barbera frá góðu vínhúsi getur hins vegar verið einstaklega ljúffeng og þokkafull og sökum þess hve hún hefur góða sýru er hægt að para hana með alls konar mat, jafnvel fiski.

Vietti er gamalgróið vínhús í Castiglioni Falleto í Piedmont sem hefur framleitt vín þar í eina og hálfa öld. Bandaríska Krause-fjölskyldan keypti vínhúsið árið 2016 og bættust þá ekrur sem hún átti í Barolo í sarp Vietti. Þetta vín úr Barbera þrúgunni kemur frá hæðunum í kringum þorpið Asti, en heitið Tre Vigne vísar til þess að þrúgurnar eru ræktaðar á þremur ólíkum ekrum.

Vínið er fagurrautt og ávöxturinn er rauður og bjartur sömuleiðis, kirsuber og rifsber, blóm og mjög mild vanilla. Þétt og sýrumikið, langt. Gefið því 1-2 tíma til að opna sig áður en það er borið fram.

90%

3.399 krónur. Frábær kaup. Reynið t.d. með villibráðarpaté, eða önd.

  • 9
Deila.