
Gerard Bertrand er í dag tvímælalaust áhrifamesti víngerðarmaður Suður-Frakklands og á mörg af bestu vínhúsum héraðsins Languedoc-Rousillon. Það var hins vegar í Domaine de Villemajou í Boutenac í Corbiéres sem að þetta byrjaði allt saman. Það er hinn upphaflegi vínbúgarður föður Gerards sem að hann tók við að honum látnum. Það er því ekki skrýtið að Villemajou hafi ákveðna sérstöðu meðal búgarða Bertrands. Uppistaðan er Carignan af gömlum vínvið en í blöndunni eru líka Grenache, Syrah og Mourvédre. Angan er sæt og krydduð, þykkur bláberjasafi, leður og kryddjurtir, sólbakað og seyðandi, þessi árgangur er eins og smækkuð útgáfa af ofurvíninu La Forge sem kemur frá sama búgarði.
3.999 krónur. Frábær kaup. Með mildri villibráð, s.s. gæs. Með lambi.
-
9