E. Guigal Cotes-du-Rhone 2019

Guigal er eitt allra besta ef ekki það besta vínhús Rhone-dalsins og það er ekkert slakað á gæðunum þegar Cotes du Rhone er annars vegar.

Cotes du Rhone er samnefnari yfir vín sem framleidd eru úr þrúgum sem geta verið ræktaðar um nær allan Rhone-dalinn. Þetta er ansi stórt svæði, teygir sig yfir 200 kílómetra svæði frá Vienne í norðri til Avignon í suðri. Vínin geta verið rauð, hvít eða rósavín og árlega eru framleiddar rúmlega 400 milljón flöskur undir merkjum þessa AOC-svæðis. Það gefur augaleið að það getur verið ansi misjafn sauðurinn í þetta stórum hópi, bæði hvað varðar stíl vínanna og gæði.

CDR-vínið frá Guigal eru alla jafna með bestu vínunum sem gerð eru í þessum AOC-flokki og stíllinn er meira í anda og stíl vínanna frá Norður-Rhone þar sem Syrah-þrúgan er í aðalhlutverki (um helmingur af blöndunni) heldur en flestra  CDR-vína sem sækja meira í suðurhlutann. Dimmrauður ávöxturinn einkennist af skógarberjum, kirsuberjum, lyngi og kryddjurtum, vínið er fókuserað, þéttriðin tannísk uppbygging, þetta er vín sem alveg þolir smá geymslu þó það sé ljúffengt núna.

90%

2.999 krónur. Frábær kaup. Með lambi og mildri villibráð.

  • 9
Deila.