Vicar’s Choice Sauvignon Blanc 2021

Saint Clair er nýsjálenskt vínhús í Marlborough-héraði sem flestu íslensku vínáhugafólki ætti að vera að góðu kunnt. Vicar‘s Choice er grunnlínan og Sauvignon Blanc er þar auðvitað flaggskipið enda sú þrúga sem Nýsjálendingar nota hvað mest. Þetta er klassískur og flottur nýsjálenskur Sauvignon, ljós og tær, skarpur og grösugur með sætum sítrus, límónu og greip, kantalópumelónu og ástaraldin. Gott bit.

80%

2.899 krónur. Frábær kaup.

  • 8
Deila.