
Þetta rauðvín frá Villa Wolf (sem er vínhús í eigu meistarans Ernst Loosen) byggist á þrúgum frá héraðinu Pfalz sem er með heitari víngerðarsvæðum Þýskalands og því upplagt til rauðvínsframleiðslu Það er kennt við þrúguna Pinot Noir, sem hér styðst ekki við hið þýska nafn sitt, Blauer Spätburgunder.
Víngerðin er það sem stundum er kallað „low tech“ það er inngripið í ferlið er sem minnst, náttúran fær að hafa sinn gang við að koma gerjuninni af stað og svo framvegis. Þetta er þægilegt og ávaxtaríkt Pinot-vín, þroskuð og sæt hindber, rifsberjasulta, jörð, mjúkt og létt. Gott að hafa það örlítið kælt – en ekki kalt, 18-20 gr´aður.
2.799 krónur. Frábær kaup. Ljúffengur og léttur Þjóðverji, reynið t.d. með hvítu kjöti, kalkún eða kjúkling. Fínt líka með laxi eða bleikju.
-
8