Tommasi Amarone della Valpolicella 2019

Tommasi-fjölskyldan er rótgróin víngerðarfjölskylda í Veneto á norðurhluta Ítalíu. Hún hefur ræktað vín þar allt frá byrjun síðustu aldar þegar Giacomo Battista Tommasi keypti fyrstu ekruna sína í Valpolicella Classico. Fjórða kynslóðin heldur nú utan um reksturinn og hefur heldur betur fært út kvíarnar út fyrir heimahagana í Veneto. Alls ræktar Tommasi nú vín á 550 hektörum víðs vegar um Ítalíu, s.s. í Maremma í Toskana, Púglíu, Basilicata og Lombardíu.

Það er hins vegar í Veneto sem að hjarta fjölskyldunnar slær og þar eru flaggskipin í framleiðslunni. Þar eru auðvitað fremst í flokki Amarone-vín  úr vindþurrkuðum Valpolicella-þrúgum. Það er gert úr klassísku rauðu Veneto-þrúgunum fjórum. Helmingurinn er Corvina en síðan Corvinone, Rondinella og Oselata. Vínið hefur djúpan og fallegan dimmrauðan lit, angan er fersk og krydduð,   þroskuð kirsuber, fjólur, reykur og leður í nefi, fersk sýra sem léttir vínið, þykkt og safaríkt, kryddað, áferðin mjúk, fersk og heit.

90%

6.599 krónur. Frábær kaup. Nútímalegur og fínn Amarone.

  • 9
Deila.