L’Odyssée Merlot-Cabernet Sauvignon 2021

L’Odyssé er vín frá Saint-Cernin, vínhúsi Róberts Wessmann í suðvesturhluta Frakklands. Fyrstu vínin sem komu frá vínhúsinu voru kennd við Saint-Cernin en að undanförnu hafa stöðugt fleiri vín verið að bætast við s.s. L’Odyssey línan þar sem er að finna yngri og ódýrari vín en sjálf Saint-Cernin-vínin. Þetta er rauðvín úr þrúgunum Merlot (80%) og Cabernet Sauvignon og kemur frá AOP-svæðinu Bergerac austur af Bordeaux. Þetta er einfalt og stílhreint rauðvín og greinilegt að það er Merlot sem ræður ferðinni. Fagurrautt með ríkjandi rauðum berjaávexti, hindber, kirsuber, tóbakslauf, mild sýra og mjúk tannín. Hið prýðilegasta rauðvín sem ekki þarf að bíða neitt eftir þó ekki sé verra að leyfa flöskunni aðeins að opna sig áður en hellt er í glös.

70%

2.899 krónur. Góð kaup. Berið fram með t.d. grilluðum kjúkling eða grísakjöti. Mildum ostum.

  • 7
Deila.