Invivo X SJP Sauvignon Blanc 2023

Það færist stöðugt í vöxt að þekktir einstaklingar, leikarar og tónlistarmenn, tengist víngerð með beinu eða óbeinum hætti. SJP í þessu tilviki stendur fyrir Söru Jessicu Parker, leikonuna góðkunnugu frá Sex and the City-þáttunum, sem undanfarin ár hefur átt samstarf við nýsjálenska vínhúsið Invivo X um að blanda vínlínu. Hvítvínið er auðvitað Sauvignon Blanc úr þrúgum frá Marlborough-héraði. Vínið er þykkt og stíllinn er kunnuglegur af þessum slóðum, út í sætan hitabeltisávöxt, ástaraldin, þroskuð límóna og greip, ágætis sýra sem brýtur upp, léttir vínið og gefur því ferskleika.

80%

3.299 krónur. Góð kaup. Fínn fordrykkur, kælið vel.

  • 8
Deila.