JJ Raven Blood Merlot Cabernet Sauvignon 2020

Jökull í Kaleo og Maison Wessmann, vínhús Róberts Wessmann í suðvesturhluta Frakklands, kynntu nýlega samstarfsverkefni um nokkur vín og er JJ Raven Blood eitt þeirra. Blandan er úr Bordeaux-þrúgunum tveimur Merlot (60%) og Cabernet Sauvignon en þrúgurnar koma frá svæðinu IGP Périgord. Það er nokkur byrjandi þroski í dimmrauðum litnum, í nefi dökkur ávöxtur, plómur, bláber, kryddað, heitt og áfengt. Vínið er ágætlega margslungið og þurfti þó nokkurn tíma til að opna sig og sýndi raunar sína bestu hlið þegar það var smakkað aftur sólarhring eftir opnun.

90%

3.999 krónur. Mjög góð kaup. Með grilluðu kjöti, ekki síst lambi.

  • 9
Deila.