
Áratugum saman tengdum við Spán fyrst og fremst við rauðvín og þá aðallega eikuð rauðvín úr þrúgunni Tempranillo. Flestir hefðu En víngerð á Spáni snýst ekki lengur fyrst og fremst um rauðvín. Hvítvínin verða stöðugt betri og meira spennandi. Albarino-vínin frá svæðunum Rias Baixas og Valdeorras í Galisíu hafa fyrir löngu sannað sig.
Galisía er eitt fallegasta hérað Spánar en jafnframt líklega eitt af þeim sem Íslendingar þekkja hvað minnst þótt að auknar vinsældir Jakobsvegarins hafi vissulega fjölgað ferðum þeirra sem að fara á þessar slóðir. Strandlengjan er skorin út af fjörðum sem að heimamenn nefna Rias og í sveitunum inn af fjörðunum er að finna besta hvítvínshérað Spánar, Rias Baixas (borið fram Ræas Bæsjas).
Vínhúsin í Galisíu eru yfirleitt lítil og fjölskyldurekin, vínin fersk, arómatísk og heillandi. Frábær vín með sjávarréttum eins og Spánverjar eru snillingar í að framreiða.
Úrvalið af Albarino-vínum hefur hins vegar því miður verið fátæklegt hér í gegnum árin. Eitt og eitt slíkt vín hefur ratað inn í úrvalið, sum jafnvel mjög góð, en oftar en ekki staldrað stutt við. Nú er vonandi að verða breyting á og nokkur prýðileg Albarino-vín fáanleg.
Vina Cartin er eitt þeirra en þrúgurnar í þessu víni koma af undirsvæðinu Val de Salnes eða Salnes-dalnum. Tært og ljósgult í nefi þroskaðar perur og gul epli, grænar kryddjurtir, þykkt og örlítið feitt í munni, fersk, fín sýru í lokin vottur af þægilegum beiskleika og seltu. Frábært matarvín.
2.925 krónur. Frábær kaup.
-
9