Casisano Brunello di Montalcino 2019

Einhver tignarlegustu vín Toskana er að finna suður af borginni Siena og nefnast þau Brunello di Montalcino. Þau vín eru ekki einungis í hópi bestu rauðvína Ítalíu heldur ásamt Barolo-vínunum frá Piedmont í norðri þau ítölsku vín sem teljast meðal stórfenglegustu vína veraldar. Líkt og flest rauðvín Toskana er hér um að ræða vín úr þrúgunni Sangiovese.  Afbrigðið sem ræktað hefur verið upp í hæðunum og dölunum í kringum þorpið Montalcino var hins vegar gefið nafnið Brunello, sem líklega er dregið af orðinu bruno og má því segja að nafnið þýði sá dökki frá Montalcino.

Góður Brunello ber af öðrum Sangiovese-vínum og raunar flestum öðrum vínum Ítalíu nema ef vera skyldi Barolo. Því má að miklu leyti þakka loftslaginu í Montalcino en meðalhiti þar er hærri en annars staðar í Toskana. Við víngerðina er sömuleiðis lögð áhersla á að ná sem mestu úr þrúgunni og vínin verða að liggja tvö ár á eikartunnum áður en þau eru sett á markað. Margir framleiðendur geyma þó vínin allt að þrjú ár á tunnum. Nota menn jafnt 225 lítra barrique-tunnur eða stórar ámur, kallaðar botte. Á markað mega vínin fara á sjötta ári frá uppskeru.

Búgarðurinn Podere Casisano er í suðurhluta Montalcino-svæðisins í Toskana og ræktar Sangiovese fyrir Rosso og Brunello-vín á um 22 hektörum af vínekrum. Casisano hefur verið í eigu Tommasi-fjölskyldunnar frá árinu 2015. Vínið er dimmrautt og liturinn djúpur örlítill þroski, í nefinu blómaangan og rauð ber, jarðarber og kirsuber, vottur af tóbakslaufum og leðri. Vínið í munni þétt og nokkuð sýrumíkið, þarf tíma til að opna sig, elegant og fínlegt.

90%

6.599 krónur. Frábær kaup.

  • 9
Deila.