Donnafugata Anthília 2010

Donnafugata Anthilia er sikileyskt hvítvín, blanda úr fjórum þrúgum þar sem sikileysku þrúgurnar Ansonica og Cataratto eru ríkjandi. Það er hins vegar einnig smá Chardonnay og Viognier í blöndunni.

Þetta er ágætt dæmi um það hve Sikiley og raunar Suður-Ítalía í heild getur verið góð uppspretta hvítvína. Flottur ávöxtur, sætar perur, tyggjókúlur og ferskjur í nefi, ungt, lifandi og sprækt. Mildar kryddjurtir í lokin í munni. Sumarlegt vín, fínt með t.d. sjávarréttapasta eða skelfisk.

2.258 krónur.

 

Deila.