Dómnefndir frá öllum Norðurlöndunum hafa nú tilnefnt þau fimm veitingahús sem munu keppa um titilinn Nordic Prize, besta veitingahús Norðurlanda á næsta ári.
Í Danmörku var það Henne Kirkeby Kro sem varð fyrir valinu, í Svíþjóð Frantzén Lindeberg, í Noregi Oscarsgade, í Finnlandi Chez Dominique og á Íslandi var Dill valið sem fulltrúi landsins annað árið í röð.