Coto Vintage 2010

Coto Vintage er rauðvín frá Rioja sem er gert með nokkuð öðrum hætti en hin hefðbundnu vín héraðsins og sker sig úr öðrum vínum frá Coto. Áherslan er á ferskan, ungan ávöxt í bland við ameríska eik en ekki – eins og venjan er í Rioja – ávöxt sem þroskast saman með eik um árabil.

Í Coto Vintage 2010 er það eikin sem er í aðalhlutverki, í nefinu áberandi kaffi og súkkulaði,  vínið ristað og dökkt. kirsuber og plómur. Mjúkur ávöxtur og mjög mild tannín.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.