Turning Leaf eru vín úr Gallo-smiðjunni sem að endurspegla ágætlega kalifornísk vín. Eins og er við hæfi þegar Kalifornía er annars vegar þá er þetta svolítið „pródúserað“ vín þar sem Chardonnay er í hlutverkinu og Kalifornía er sviðið.
Ljós, gulur litur. Sæt, feit og ávaxtarík angan, þroskaðar ferkskjur, apríkósur, rauð epli, smjör. Sætur, þykkur ávöxtur í munni en jafnframt sýra til að skera í gegn og gefa víninu ferskleika. Ekta vín fyrir standandi boð.
1.999 krónur. Góð kaup.