Það er vor í lofti og af því tilefni fengum við Aðalstein Jóhannesson til að setja saman nokkra sumarlega drykki í öllum regnbogans litum en hann er menntaður sem þjónn og vínþjónn og hefur komið víða við bæði hér heima og í Noregi.
Tropical Peach og Bananas er í anda þeirra drykkja sem vinsælt er að sötra í hitabeltinu, ekki síst Karíbahafi. Sá fyrri með ríkjandi ferskjulíkjör en sá síðari eins konar banana-afbrigði af Pina Colada. Drykkurinn Blue Apollo er tilbigði við einn þekktasta kokkteil Íslands en með Curacao-líkjör verður hann bláleitur og framandi. Fruitini og Peach on the Beach eru hins vegar fagurrauðir, sá fyrri vodka-martini með trönuberjasafa en sá síðari skemmtilegt tilbrigði af hinum vinsæla Sex on the Beach. Síðustu tveir drykkirnir, Toffee Appletini og Karamellu Daiquiri eru eins og nöfnin gefa til kynna byggðir upp í kringum karamellulíkjör eða Butterscotch en slíkir líkjörar hafa verið ansi vinsælir upp á síðkastið.