Trivento Reserve Cabernet-Malbec 2014

triventoTrivento er eitt af vínhúsunum í eigu Concha y Toro-fjölskyldunnar frá Chile en það var stofnað árið 1997 í þeim tilgangi að nýta hina stórkostlegu aðstæður til víngerðar sem er að finna í Argentínu „hinum megin“ við Andesfjöllin. Vínin frá Trivento hafa reynst einstaklega traust og hlutfall verðs og gæða með því besta sem maður rekst á.

Dökkfjólublátt á lit, ungt, kröftugur, djúpur og svartur berjaávöxtur, sólber, krækiber, mikill ávöxtur í bland við sæta og milda eik, góður strúktúr, fínleg tannín, virkilega vel gert vín.

 

80%

1.899 krónur. Frábær kaup á þessu verði.

  • 8
Deila.