Place in the Sun er eins og heitið gefur óneitanlega til kynna vín af suðrænum og sólríkum slóðum, nánar tiltekið Suður-Afríku og þar auki auðmerkt sem „fairtrade“. Þegar rýnt er í flöskumiðann kemur í ljós að þetta er vín frá einu af hinum rótgrónu vínhúsum Stellenbosch eða Zonnenbloem. Og þetta er bara hreint ágætt dæmi um suður-afrísk rauðvín úr Cabernet, dökkt, heitt með þroskuðum plómuávexti, töluvert kryddað, þarna er blek, malbik og dökkristað kaffi. Mjúkt og milt í munni, mjúk tannín.
70%
1.899 krónur. Mjög góð kaup, grillvín.
-
7