Vitral Chardonnay frá Vina Maipo er hvítvín frá Casablanca-dalnum, einu helst hvítvínshéraði Chile þar sem kalt loft frá Kyrrahafinu læðist yfir á nóttunni og kælir vínviðinn eftir sólbakstur dagsins. Það eru einmitt kjöraðstæður til framleiðslu á ferskum og ávaxtaríkum hvítvínum.
Liturin er ljósgulur og í nefi mæti manni sætur og suðrænn ávöxtur, sætar melónur og ananas, sítrusbörkur, mild eik, þetta er vín sem tikkar í öll nýjaheims-boxin, vel gert og þægilegt, með miklum og fínum ávexti. Fínasta vín fyrir sumarið, þegar og ef það kemur.
80%
1.899 krónur. Frábær kaup á þessu verði. Gefur mjög mikið fyrir peninginn. Með grilluðum fiski eða sem fordrykkur.
-
8