Hess North Coast Cabernet 2016

North Coast er amerískt víngerðarsvæði eða AVA sem nær yfir sex sýslur norður af San Francisco: Lake, Marin, Mendocino, Napa, Sonoma, og  Solano. Þetta er um margt dæmigert Kaliforníu Cabernet með þroskuðum og þykkum ávexti, í nefnu sætar plómur og kirsuber, sólber, kóngabrjóstsykur. Feitt og mjúkt í munni, sætur ávöxtur heldur áfram í löngum endi.

80%

2.999 krónur. Mjög góð kaup. Með mildri villibráð, lambi. Þolir alveg smá sætu í meðlæti.

  • 8
Deila.