Adobe-vínin eru frá vínhúsinu Emiliana í Chile sem er í fremstu röð þeirra vínhúsa sem sérhæfa sig í lífrænt ræktuðum vínum og í þessu tilviki líka Vegan. Merlot-vínið er að okkar mati ár eftir ár með þeim betri í Adobe-línunni, þetta ungt og ferskt vín, í nefi bláberjasafi og kirsuber, leður, nefið svolítið kryddað, mild eik, piprað og þægilegt. Mjúkt og nokkuð langt í munni.
80%
2.099 krónur. Frábær kaup. Fínt með t.d. pastaréttum eða kjúklingasalati. Grilluðum kjúkling.
-
8