Adobe Chardonnay Reserva 2020

Adobe-vínin frá chilenska vínhúsinu Emiliana eru öll lífrænt ræktuð og hvítvínin eru yfirleitt með þeim fyrstu sem að við fáum af nýjum árgangi, enda er uppskeran í Chile í byrjun árs þegar haustið fer að ganga þar í garð. Þetta er ungt og ferskt hvítvín, ávöxturinn í nefinu suðrænn, ferskjur og sítrus, ekki síst sítróna og sætur greipávöxtur. Þarna er líka þroskuð kantalópumelóna og vottur af ananas, kryddvottur. Þurrt með ferskri sýru.

80%

2.199 krónur. Frábær kaup. Með sushi, með austurlenskum mat.

  • 8
Deila.