Casa Concha Cabernet Sauvignon 2020

Fjölskyldan Concha y Toro er líklega sú áhrifamesta í chilenskri víngerð fyrr og síðar og samnefnt vínhús hefur verið einn helsti drifkrafturinn í víniðnaði Chile síðastliðna öld. Casa Concha-línan endurspeglar vel ólík ræktunarsvæði og þrúgur landsins. Cabernet Sauvignon-vínið í línunni er að sjálfsögðu frá hinu klassíska héraði Maipo þar sem rætur Concha y Toro er dýpstar. Dimmrauður og djúpur litur, sólber og plómur, sæt og krydduð eik, vottur af vanillu og reyk, í munni kröftugt, mild tannín og sætur, þykkur ávöxtur.

80%

3.399 krónur. Frábær kaup. Með nauti. Með villibráðarpate.

  • 8
Deila.