
Alberto Zuccardi var fyrstur til að hefja vínrækt í Maipú í Mendoza og fjölskyldan er einnig meðal frumkvöðlana í Uco. Barnabarnið Sebastian er nú við stjórnvölinn og áherslan er enn á að finna einstakar ekrur sem draga fram einkenni viðkomandi svæða. Q-línan frá vínhúsinu var sú fyrsta sem gerð var undir nafni fjölskyldunnar og nafnið er dregið af því að í upphafi voru skikar á vínekrum sem þóttu bera af merktir með skilti sem á stóð Q til að auðkenna að þar væru gæðin (Quality) hæst. Malbec-vínið er gert úr þrúgum af nokkrum ekrum af ólíkum svæðum innan Uco og eru gerjaðar í aðskildu lagi áður en hin endanlega blanda er mótuð.
Q er ungur og kröftugur Malbec, vínið unglegt og fjólublátt með þroskaðri, ferskri plómu- og krækiberjaangan, mildri vanillu úr franskri eikinni, massað, ferskt, ávöxturinn þykkur, sætur, piprað og nokkuð míneralískt. Hörku Malbec.
3.813 krónur. Frábær kaup. Þetta er hörkuflottur Malbec sem kallar á rauða steik.
-
9