Cloudy Bay Chardonnay 2008

Allt frá því að Cloudy Bay var stofnað í Wairau-dalnum í Marlborough á Nýja-Sjálandi árið 1985 hefur Cloudy Bay verið eitt fremsta vínhús landsins og er í hugum margra eitt helsta tákn nýsjálenskra gæðavína.

Þekktast er Cloudy Bay fyrir Sauvignon Blanc en Chardonnay-vínin eru síst síðri. Þau eru framleidd með öðrum hætti, m.a. látin liggja á eikartunnum í ár og því er nú 2008-árgangurinn sá nýjasti á markaðnum. Vínið er hins vegar ennþá afskaplega ungt. Þetta er ávaxtabomba með yndislegum suðrænum ávexti, sítrus, sítrónukremi og þroskuðum mangó. Vínið er þykkt og langt í munni, eikin gefur því rjómakennda mýkt. Hreinasta unun.

Reynið þetta vín t.d. með grilluðum humar.

4.598 krónur. Góð kaup.

Deila.