Það er mismunandi eftir svæðum hvað skiptir mestu máli í framleiðslu vínhúsa. Hjá flestum nýsjálenskum vínhúsum er það hvernig þeim tekst upp með Sauvignon Blanc það sem flestir horfa til.
Sauvignon Blanc Private Bin frá Villa Maria er vín úr þrúgum ræktuðum á svæðinu Marlborough á Suður-Eyju. Þetta er klassískur, nýsjálenskur Sauvignon Blanc, tær á lit með skarpri, svolítið grænni angan af stikilsberjum, greip og límónu og kryddjurtum. Ferskt, skarpt og sýruríkt í munni með safaríkum, suðrænum ávexti líkt og búast má við af Sauvignon Blanc frá Marlborough.
2.929 krónur.