Bollinger er ekki í hópi stærstu kampavínshúsanna en það er eitt hið allra virtasta. Fyrirtækið var stofnað í smábænum Aÿ suður af Reims árið 1829 af tveimur mönnum, aðmírálnum Athanase Louis Emmanuel og tengdasyni hans, Jacques Joseph Placide Bollinger.
Bollinger á 178 hektara af vínekrum og eru þær flestar á Grand Cru og Premier Crusvæðunum. Koma 60-70% af þrúgunum, sem notaðar eru í Bollingerkampavín, af ekrum í eigu fyrirtækisins. Nokkur atriði ráða úrslitum um hinn einstaka stíl Bollingerkampavína. Í fyrsta lagi byggjast þau á Pinot Noir, öðru fremur en alla jafna er Pinot Noir-hlutfallið um 60%
Bollinger er eitt af örfáum fyrirtækjum í Champagne, sem enn gerjar bestu vín sín (árgangskampavín) í eikarámum, 200 og 400 lítra, en það hefur töluverð áhrif á stíl vínsins.
Það á einnig við um hið hefðbundna Bollinger Special Cuvée þar sem eldri eikargerjuðum vínum er bætt saman við yngri vin. Þetta er kampavín með mikla dýpt og töluvert meiri þroska en flest önnur hefðbundin kampavín. Það er kröftugt með sítrus og engifer ásamt ristuðum hnetum, hunangi og brioche í nefi. Freyðir jafnt og þægilega með löngu bragði. Venjuleg kampavín gerast ekki mikið betri.
7.799 krónur