Eyrún Huld Gísladóttir barþjónn á Silfri bar sigur úr býtu á Finlandia Cup-keppninni sem haldin var á Nasa fyrir helgi. Alls tóku 43 barþjónar þátt í keppninni, sem haldin var í samvinnu við Barþjónaklúbb Íslands, og er þetta því ein umfangsmesta keppni af sínu tagi sem haldin hefur verið á Íslandi.
Húsfyllir var á Nasa og var rykkur Erúnar Huldar, sem bar nafnið Dannyboy, hlutskarpastur í keppninni um besta drykkin líkt og áður sagði. Silfur átti einnig sigurvegarann í keppninni um faglegustu vinnubrögðin en þar var það Hreinn Hjartarson sem stóð uppi sem sigurvegari.
Í Flare keppninni sigraði svo Daniel Óli Þorláksson frá Lava í Bláa lóninu.