Komið hefur í ljós að litur á tréloki á tappanum, sem notaður er á Aalborg Jólaákavíti ársins 2010, getur komist í snertingu við vökvann. Liturinn er hættulaus. Þrátt fyrir það hefur í varúðarskyni verið ákveðið að afturkalla alla framleiðslu þessar vöru.
Sala á Jólaákavítinu var ekki hafin á Íslandi. Þetta mun hins vegar valda því að ekkert Jólaákavíti 2010 frá Aalborg verður í boði í vínbúðunum á þessu ári.
Mjög takmarkaðar birgðir eru til af eldri árgöngum af Jólaákavítinu og verða þeir seldir í vínbúðunum og á völdum veitngahúsum.