Cune Crianza 2007

Compania Vinicola del Norte del Espana (Cune eða CVNE) er næst elsta vínhús Rioja og með þekktustu vínfyrirtækjum Spánverja. Cune-vínin eru klassísk Rioja-vín sem halda í hefðirnar.

Cune Crianza 2007 er yngsta vínið í línunni, skarpur berjaávöxtur í nefi, krækiber í vanillu, svolítið sprittað. Nokkuð tannískt og ungt. Gott matarvín.

1.999 krónur.

 

Deila.