Tenuta Sant Antonio, sem er í eigu Castagnedi-fjölskyldunnar er gott dæmi um þær jákvæðu breytingar sem hafa átt sér stað í Valpolicella á Ítalíu en fyrirtækið hefur verið leiðandi í hópi nokkurra fremur lítilla fyrirtækja er leggja áherslu á hæstu gæði fremur en mesta magn.
Valpolicella-vínið Nanfré frá þessu vínhúsi er gott dæmi. Kirsuber, smjördeig og svartar ólívur í nefi. Sætur, ungur ávöxtur í munni með mildri sýru. Flott matarvín.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.