Bernard Defaix stofnaði vínhús sitt árið 1959 og átti þá tvo hektara af vínekrum í Chablis. Þeim hefur fjölgað í gegnum árin og Defaix framleiðir nú vín jafnt frá Chablis sem Rully sunnar í Bourgogne. Synir Bernards, þeir Sylvain og Didier, hafa tekið yfir reksturinn að mestu en Bernard kemur enn að víngerðinni. Á undanförnum árum hefur verið unnið hörðum höndum að því að breyta allri ræktun yfir í lífræna framleiðslu.
Chablis 2009 er stílhreinn og klassískur Chablis, mjög ferskur og míneralískur með sítrusávexti og blómum í nefi. Þykkt, þétt sýra og tært bragð í munni.
2.690 krónur.