Columbia Crest Merlot 2005
Þetta rauðvín kemur frá stærsta framleiðanda Washington-ríkis í Bandaríkjunum. Loftslag þar er nokkuð frábrugðið til dæmis hinum kaliforníska og ekki síst er það Merlot-þrúgan sem nýtur sín best á þessum slóðum.
Þetta rauðvín kemur frá stærsta framleiðanda Washington-ríkis í Bandaríkjunum. Loftslag þar er nokkuð frábrugðið til dæmis hinum kaliforníska og ekki síst er það Merlot-þrúgan sem nýtur sín best á þessum slóðum.
Það er kominn nýr árgangur af rauða Bordeaux-víninu Lamothe-Vincent en 2005 árganginum sem til skamms tíma var í sölu lýsti ég sem góðu kreppuvíni. 2005 var stór árgangur í Bordeaux. Árgangurinn 2007 var yfir meðallagi og stendur alveg í hárinu á hinum frægari árgangi.
Fyrir skömmu fjallaði ég um Barossa Old Vines Shiraz frá Grant Burge sem fæst enn á eldgömlu verði, hér er annað vín, meira að segja skörinni ofar í gæðum, þetta er einnar ekru Barossa, sem gefur hrikalega mikið fyrir peninginn.
Þetta Chardonnay-vín frá Catena í Mendoza í Argentínu er djúpt og fágað, ég veit ekki hvort að maður eigi ekki að segja svoleiðis en það minnti mig eiginlega meira á Sonoma en Mendoza.
Catena er með stærstu nöfnum argentínskrar víngerðar og framleiðir vín í nokkrum gæðaflokkum, allt frá Alamos upp í Catena Zapata-línuna
Rétt eins og Sauvignon Blanc virðist henta nýsjálenskum aðstæðum vel í hvítvínsrækt þá er það Búrgundarþrúgan Pinot Noir sem gefið hefur hvað besta raun í höndum andfætlinganna.
Það er eitthvað með Nýja Sjáland og Sauvignon Blanc sem smellpassar. Það er enginn furða að þessi franska þrúga skuli vera mest ræktaða þrúgan í vínhéraðinu Marlborough.
Þetta er ungt og létt rauðvín frá Argentínu í ódýrari kantinum, raunar orðið mjög sjaldgæft að maður sjá verð á þessu róli, því miður.
Rauðvínin frá Montecillo hafa löngum notið hylli hér á landi enda hin ágæustu Rioja-vín. Montecillo er gamalgróið vínhús sem nú er í eigu Osborne-sérrírisans. Þetta Reserva-vín er unnið 100% úr þrúgunni Tempranillo og var geymt eitt ár á eikartunnum og tvö ár á flösku í kjöllurum Montecillo áður en það fór á markað.
Þrúgan Syrah er frönsk að uppruna og þekktust í Rhone-héraðinu þar sem hún uppistaða vína á borð við Hermitage, Cote-Rotie og St.-Joseph.