Saltfiskur Barcelona

Það er endalaust hægt að leika sér með saltfiskinn og það sem meira er hann fellur unaðslega vel að rauðvínum og þá ekki síst spænskum Rioja-vínum. Best er að nota saltfisk sem er saltaður eins og Spánverjar vilja hafan en hann er hægt að kaupa frystan í betri stórmörkuðum. Þessi uppskrift er enda sótt beint til Katalóníu á Spáni.

500 g þykkir saltfiskbitar

1 dós kryddlegnar paprikusneiðar

1 dós heilir tómatar

2 dl hvítvín

1 rauður chili, fræhreinsið og skreið í þunnar ræmur

2 vorlaukar, skornir í ræmur

1 búnt flatlaufa steinselja, söxuð

1 búnt graslaukur, saxaður

4 hvítlauksgeirar, pressaðir

1 tsk kanil

1 msk sykur

2 lárviðarlauf

ólívuolía

salt og pipar

Hitið ofninn í 200 gráður.

Veltið saltfiskbitunum upp úr hveiti og steikið síðan í olíu á pönnu þar til að hann hefur tekið á sig gullinbrúnan lit. Setjið bitana í ofnfast fat. Bætið smá olíu aftur á pönnuna og steikið hvítlaukinn, chili-piparinn, kanil, graslauk og lárviðarlauf á vægum hita í 2-3 mínútur. Bætið þá við tómötunum, vorlauk, sykri og hvítvíni. Hækkið hitann aðeins og látið malla þar til að sósan fer að þykkna.

Setjið paprikusneiðarnar ofan á fiskinn í fatinu og hellið síðan sósunni af pönnunni yfir. Bætið smá ólívuolíu við og stráið steinseljunni yfir. Bakið í 15-20 mínútur.

Sáldrið meira af saxaðri steinselju yfir og berið fram með kartöflumús og góðu Rioja-víni, Faustino VII.

Eins og alltaf þegar við eldum með Faustino þá verður flaska af viðkomandi dregin út af nöfnunum á póstlistanum okkar.

Vinningshafa fyrir síðusta útdrátt má sjá í fréttabréfi Vínóteksins.

SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN OG ÞAR MEÐ POTTINN HÉR

 


Senda á Facebook | Skoðanir (1)

Ummæli

11.06.2010 | 09:28 | Lilja Kristófersdóttir Ég var að uppgötva þennan vef en ég fékk linkinn sendan frá vinkonu. Ég á pottþétt eftir að nýta mér fróðleik og uppskriftir af þessari frábæru síðu. Saltfiskurinn frá Barcelona verður prófaður mjööög fljótlega. Takk fyrir þetta. Kveðja af Skaganum Lilja Kristófersdóttir






Senda skoðun
Hreinsa texta