Hummus er kjúklingabaunamauk sem er mikið notað í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs og hefur á síðastliðnum árum notið vinsælda um allan heim. Það er lítið mál að búa til heimatilbúið Hummus en það er til dæmis frábært sem ídýfa.
- 1 dós kjúklingabaunir
- 2 dl ólívuolía
- 1,5 dl Tahini
- safi úr hálfri sítrónu (bragðið til, meira af vill)
- 1/2 tsk cummin
- klípa af salti
Blandið öllu saman í matvinnsluvél. Setjið í skál og skreytið með fínt saxaðri steinselju og hellið jafnvel smá ólívuolíu yfir.