Þetta er Cava eða freyðivín frá Katalóníu á Spáni, raunar freyðandi rósavín úr þrúgunum Garnacha (Grenache) og Trepat.
Freixenet Cordon Rosado Brut er ávaxtamikið og þægilegt freyðivín, ávöxturinn berjamikill með jarðaberjum í fyrirrúmi. Það freyðir vel með mildum og mjúkum bólum og er frá náttúrunnar hendi sýruminna en freyðivín frá svalari ræktunarsvæðum í norðurhluta Evrópu. Í alla staði vel gert og aðlaðandi freyðivín á fínu verði, sem tryggir því fjórðu stjörnuna fyrir samspil verðs og gæða.
2.057. Mjög góð kaup.