Það er ekki langt síðan að franskar reglur meinuðu víngerðarmönnum í Búrgund að taka fram á flöskumiðanum að hvítvínin þeirra væru gerð úr Chardonnay-þrúgunni. Nú hefur verið slakað á þeim reglum og Pascal Lachaux er ekkert að fela þessa vinsælu þrúgu.
Þetta vín er líka í stílnum um margt eins konar blanda af hinum nýja heimi og gamla. Það hefur birtu og ávöxt hins nýja en jafnframt dýpt og fágun hins gamla. Og allt þetta í „einföldum“ Bourgogne Blanc. Enda er Lachaux ekki neinn aukvisi. Hann er þekktastur fyrir að halda utan um vínhús tengdafjölskyldunnar Arnoux-Lachaux en framleiðir einnig nokkur vín undir eigin nafni.
Bourgogne Blanc 2008 er þokkafullt vín, með sætum og þéttum sítrus og ferskjuávexti. Mild eik gefur víninu aukna þyngd í munni, þar sem það er í senn mjúkt og feitt, ferskt og langt. Yndislegt.
2.895 krónur. Frábær kaup.