Þrátt fyrir að löngum hafi verið litið svo á að vodka sé þjóðardrykkur Pólverja sýnir ný rannsókn að flestir Pólverjar kjósa fremur aðra drykki. Mikla athygli vekur að léttvín nýtur nú meiri hylli í Póllandi en vodka.
Samkvæmt könnun CBOS er bjór vinsælasti drykkurinn í Póllandi nú um stundir. 17% Pólverja segja vodka vera uppáhaldsdrykk sinn en 21% nefndu léttvín.